Með Viðskiptasafni Creditinfo gefst þér kostur á að vakta breytingar sem kunna að verða hjá samstarfsaðilum og viðskiptavinum svo þú getir lágmarkað afskriftir. Viðskiptasafnið vaktar breytingar sem kunna að verða á lánshæfi og vanskilastöðu viðskiptavina þinna og tilkynnir um þær daglega með tölvupósti. Á þjónustuvef Creditinfo gefst þér einnig kostur á að fá yfirsýn yfir dreifingu á áhættu í þínu viðskiptasafni og tekið út lista yfir áhættusama viðskiptavini.

Myndband sem sýnir notkunarmöguleika Viðskiptasafnsins.

Hvernig virkar Viðskiptasafnið?

Eftir að þú hefur skráð þig á þjónustuvef Creditinfo getur þú valið að fara inn á Viðskiptasafnið með því að smella á hlekk vinstra megin á síðunni:

Þegar þú opnar Viðskiptasafnið getur þú séð yfirlit yfir allar þær kennitölur sem eru í vakthólfinu þínu með tilliti til lánshæfismats og vanskilastöðu.

Staðan:

Staðan sýnir skiptinguna í áhættuflokka. Talningin sýnir fjölda aðila í hverjum flokki og hvert hlutfallið er af safni áskrifanda. Hægt er að smella á hvern flokk fyrir sig og opnast þá safnið, afmarkað eftir því hvað var valið. Til að uppfæra vakt er smellt á uppfæra og þá birtist val til að hlaða inn skjali eða slá inn kennitölur. Smelltu hér til að fá nánari leiðbeiningar um hvernig þú uppfærir þitt vakthólf.

Gögn eru einungis birt fyrir flokkana mjög áhættulítið, lítil áhætta, möguleg áhætta og mikil áhætta ef lánshæfismat er vaktað. Á myndinni hér að neðan er lánshæfismat einstaklinga ekki vaktað sem skýrir tóma flokka í þeirri línu.

Hnappurinn vakthólf opnar glugga með lista yfir allar kennitölur sem eru í vaktinni. Til að sjá hversu margar kennitölur eru í, hversu stórt vakthólfið er, dagsetningu síðustu tilkynningar og dagsetningu síðustu uppfærslu vakthólfs er smellt á uppfæra.

Greiðsluhegðun:

Gögn yfir greiðsluhegðun birtast einungis þeim sem miðla greiðsluhegðunarupplýsingum inn í viðskiptasafnið. Smelltu hér til að kynna þér betur kosti þess að miðla greiðsluhegðunarupplýsingum til Creditinfo.

Með því að miðla greiðsluhegðunarupplýsingum opnast sýn á:

  • fjölda aðila með tvo eða fleiri útistandandi reikninga
  • fjárhæð útistandandi reikninga
  • fjárhæð komin fram yfir eindaga

Jafnframt er hægt að setja kennitölur á útilokunarlista og þannig koma í veg fyrir að upplýsingar um greiðsluhegðun viðkomandi aðila til þín verði miðlað áfram inn í kerfið.

Vaktin:

Í töflunni Vaktin eru tilkynningar um breytingar á stöðu þeirra viðskiptavina (síðustu 24 klst) sem áskrifandi vaktar sérstaklega í safninu sínu.

Myndin hér að neðan sýnir að örin er rauð þegar lánshæfi aðila versnar en græn þegar það batnar.

Ef þú vilt kanna hvernig lánshæfiseinkunn eða vanskilastaða tiltekins viðskiptavinar hefur breyst frá því að þú settir hann í vakt getur þú slegið inn kennitölu efst í vinstra horninu. Þessu yfirliti fylgir enginn viðbótarkostnaður en með því að smella annað hvort á „Lánshæfismat“ eða „Vanskilaskrá“ lengst til hægri í töflunni greiðir þú fyrir annað hvort skýrslu um lánshæfismat eða vanskil skv. verðskrá.

Safnið

Með því að smella á „Safnið“ getur þú séð á einum stað upplýsingar um allar þær kennitölur sem eru í vakthólfi þínu. Blá bjalla táknar að viðkomandi er í vöktun og ef lánshæfismat er vaktað þá skila breytingar á því sér í vaktina og í greiningarnar á síðunni „Yfirsýn“. Hægt er að smella á hnappinn „Afmarka“ til að opna valmöguleikana sem sjást hér að neðan til að vinna með gögnin í safninu. Með því að smella á „Excel“ hnappinn getur þú tekið út safnið eða þá afmörkun sem þú hefur stillt á Excel-sniði til frekari greiningar.


Ef frekari spurningar um Viðskiptasafnið vakna hvetjum við þig til að hafa samband.